Aðskilnaður ríkis og kirkju

Þessi breyting, sem vafalaust verður samþykkt í Noregi, er aldeilis af hinu góða. Það er ekki forsvaranlegt að miðaldahugmyndir um samband guðs almáttugs við keisarana séu enn við lýði. Við Íslendingar þurfum að taka þetta okkur til fyrirmyndar. Norðmenn eru svo gæfusamir að allir flokkar leggja málið fram og að líkindum styðja það, en ég sé ekki alveg fyrir mér að slíkt gæti gerst hér. Við eigum sennilega langa leið fyrir höndum áður en samþykkt verður að skilja á milli ríkis og kirkju. Það gengur ekki upp að segja að trúfrelsi ríki en gera svo jafnframt einum trúarbrögðum mun hærra undir höfði en öðrum.
mbl.is Aðskilnaður ríkis og kirkju í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurmáni...

Ofurmáni kallast það þegar tungl er næst jörðu og er jafnframt fullt. Þetta átti sér stað í gærkvöldi og eru stórkostlegar myndir sem fylgja þessari frétt.

Hins vegar er texti  undir mynd dálítið brenglaður og sýnir að blaðamaður er illa áttavilltur og veit lítið um fullt tungl, þar sem hann segir: Ofurmáni rís í vestri yfir Reykjavík.

Það er nú einu sinni svo að fullt tungl, hvort sem það er ofurmáni eða ekki, rís ekki í vestri heldur alltaf í austri. Þegar ofurmáni rís í vestri þá verður það frétt allra tíma.


mbl.is Íslenskur ofurmáni á CNN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í innsiglingunni

Það er rangt að þetta sip hafi strandað í innsiglingunni. Eins og sést af myndinni er skipið komið fram hjá hafnarmynninu og er því ekki lengur í innsiglingunni. Það þarf að gera þá kröfu til skipstjórnarmanna að þeir séu læsir á merkin, en það hefur greinilega klikkað þarna.
mbl.is Skýring á strandi liggur ekki fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á tvítugsaldri

Hér segir frá því að tveir menn á tvítugsaldri hafi verið handteknir fyrir að halda 16 og 17 ára stúlkum í kynlífsánauð. Það er ánægjulegt að takast skyldi að frelsa stúlkurnar. En svo er það aldur fólksins sem kemur við sögu. Orðasambandið "á tvítugsaldri" er venjulega ekki notað í íslensku, en væri það gert ætti það við um einstaklinga á aldursbilinu 10-20 ára. Semsagt að þessar stúlkur sem frelsaðar voru eru "á tvítugsaldri" ef við viljum nota það orðalag. Alveg er ég viss um að mennirnir tveir voru eitthvað eldri og hafa miðað við frásögnina trúlega verið á milli tvítugs og þrítugs. En þá er talað um að fólk sé á þrítugsaldri. Léleg íslenskukunnátta blaðamannsins skín hér í gegn.
mbl.is Unglingsstúlkum bjargað úr kynlífsánauð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ari Trausti Guðmundsson

Mjög frambærilegur kandídat þarna. Vonandi ákveður hann að gefa kost á sér og byrjar svo baráttuna á fullu. Ég hef enga trú á að hann hugsi til framboðs fyrir hluta af kjörtímabilinu.
mbl.is Ari Trausti íhugar forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefur kost á sér

Ólafur Ragnar er búinn að vera þjóðinni betri en enginn í gegnum Icesave-ruglið, sem nauðsynlegt er að muna núverandi stjórnarflokkum vel og lengi. Hins vegar er engin leið að líka það þegar hann segist gefa kost á sér en gefur um leið í skyn að hann muni jafnvel hætta kannski á miðju kjörtímabili. Annaðhvort gefa menn kost á sér til fjögurra ára eða ekki. Það eina sem gæti valdið því að forseti hætti áður en fjögur ár eru liðin væri slæmt heilsufar eða andlát. Vonandi er hvorugt beinlínis á stefnunni hjá Ólafi. Samt er það svo að maður gæti setið uppi með það að verða að kjósa hann, allavega ef enginn með viti býður sig fram á móti honum. Einhverjir þeirra sem lýst hafa yfir framboði gætu dregið sig til baka. Ég geri ekki ráð fyrir að margir gefi kost á sér í viðbót. Þjóðin á bara einn Ástþór, það jafnast enginn á við hann. Og Jón Lárusson er algjörlega óskrifað blað. En það var nú Vigdís líka þegar hún bauð sig fram. Ég kaus hana ekki, en kunni samt vel við hana í embættinu frá og með þátttöku hennar í "kryddsíldinni" forðum hjá Margréti dönsku. Hins vegar hefur mér ekki líkað við hana eftir að hún varð fyrrverandi.
mbl.is Ólafur Ragnar gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banna skipulagða glæpastarfsemi

Ég er þeirrar skoðunar að Björgvin G. Sigurðsson ætti alls ekki að eiga sæti á Alþingi, frekar en aðrir sem voru ráðherrar í hrunstjórninni, Jóhanna, Össur, Þorgerður K. G., Einar Guðfinns, Guðlaugur Þór og allt þetta lið sem ætti að vera á sakamannabekk með Geir Haarde. Samt er það svo að ég styð hann og skoðun hans í þessu máli alfarið. Vonandi tekst mönnum að berja saman lagatexta sem gerir svona samtök útlæg af landinu að fullu og öllu. Búningar þeirra eru að sjálfsögðu óþarfir með öllu ef samtökin eru bönnuð.
mbl.is Vill banna mótorhjólagengin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Margir þingmenn ollu vonbrigðum"

... það verð ég að segja. Í fyrsta lagi er örstutt síðan að atkvæði voru greidd á þingi um sömu tillögu, það er að segja að vísa tillögu Bjarna frá. Þá var tillagan felld og ákveðið að tillaga Bjarna fengi efnislega umfjöllun og yrði afgreidd með atkvæðagreiðslu. Auðvitað á Alþingi að fjalla efnislega um sérhverja tillögu sem fram er borin. Frávísun á að vera svo fáheyrð að menn á að setja verulega hljóða komi fram tillaga um slíkt. Hvað þá að slík tillaga sé borin fram öðru sinni eftir að búið er að fella hana mánuði áður. Það er bara alvarlegt mál og þarf að finna út hvaða þingmenn felldu frávísunartillöguna 20. janúar en samþykktu hana núna, 1. mars. Það eru ljótu vindhanarnir. Annars greiddu menn atkvæði sem hér segir:

Já sögðu:

Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Birgitta Jónsdóttir, Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Guðbjartur Hannesson, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Höskuldur Þórhallsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Magnús H. Norðdahl, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Lúðvik Geirsson, Magnús Orri Schram, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Oddný Harðardóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Vigdís Hauksdóttir, Þór Saari, Þráinn Bertelsson, Þuríður Bachman.

 Nei sögðu:

Atli Gíslason, Ásta R. Jóhannesdóttir, Árni Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Ásmundur Einar Daðason, Birgir Ármansson, Birkir Jón Jónsson, Bjarni Benediktsson, Einar K. Guðfinnsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Bragi Sveinsson, Illugi Gunnarsson, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson, Ólöf Nordal, Pétur Blöndal, Ragnheiður Árnadóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.

 


mbl.is „Margir þingmenn ollu vonbrigðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúðuheimum í Borganesi lokað

Að þessu er mikil eftirsjá. Síðastliðið sumar kom ég þarna með barnabarni. Afinn og sex ára guttinn og mamma hans og amma kunnu öll jafn vel að meta það sem boðið var upp á. Ekki þótti litla manninum verra að hafa séð sumar brúðurnar í sjónvarpinu og hann horfði á þær með lotningu. Svo bjó hann til sitt eigið leikrit um kónginn, drottninguna og prinsessuna og lét mömmu sína vera áhorfanda. Þetta var mikil upplifun og gerir Borgarnes eftirminnilegt umfram annað. Því er eftirsjáin umtalsverð.
mbl.is Brúðuheimum í Borganesi lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinilega satt

Kurr. En enginn kom upp til þess að reyna að hrekja ummælin. Svo að þetta er örugglega satt.
mbl.is Greiðslan fyrir stuðning Hreyfingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 46703

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband