Fyrirgefðu...

"Mamma, fyrirgefðu. Mér þykir þetta leitt.“

Þetta voru ein af síðustu orðum stúlkunnar sem margir ribbaldar nauðguðu í strætisvagni á Indlandi. Þessi orð lýsa sjúku viðhorfi samfélagsins: Ef konu er nauðgað, þá er það alfarið henni að kenna. Mikil vakning virðist vera að eiga sér stað í landinu þessa dagana, en fullkomin spurning er hversu djúpt það ristir þegar frá líður.

Svona hefðbundnum viðhorfum samfélagsins verður ekki breytt á einum degi við það eitt að einhver mótmæli og segi eitthvað. Það þarf að ala upp næstu tvær kynslóðir eða svo með þá hugsun í kollinum að nauðgun sé glæpur. Þá verður kominn meirihluti þjóðarinnar, sem samanstendur af yngstu kynslóðunum, sem þessi afstaða er innprentuð í frá blautu barnsbeini.


mbl.is Hvíslaði „mamma, fyrirgefðu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óttalegir kálfar

Þarna hefði vissulega getað farið illa. En þvílíkur aulagangur sem þarna var á ferðinni. Ekki einn einasti af "björgunarmönnunum" hafði á því vit eða rænu að leggjast flatur og mjaka sér þannig nær vökinni. Fara úr yfirhöfn og kasta annarri erminni til mannsins í vökinni og draga hann svo aftur á bak upp á ísinn um leið og hann syndir með fótunum til þess að hjálpa til. Þess í stað hegða allir sér eins og kjánar, fjölmenna út á ísinn, enda fór tugur manna sömu leið og sá fyrsti. Þetta er gott kennslumyndband í því hvað ber að varast þegar bjarga þarf manni úr vök. Þarna var allt gert vitlaust. Það eina vitræna sem ég sá var að einhver var kominn með snæri og reyndi að kasta endanum út í vökina. En sá maður stóð upp á endann eins og allir aðrir og gott ef hann fór svo ekki á kaf líka.
mbl.is 10 féllu niður um ís við björgunarstörf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er tifandi tímasprengja

Maður, líttu þér nær, mætti nú segja. Er ekki talið af jarðvísindamönnum að Yellowstone sé ofureldstöð sem geti bókstaflega splundrast hvenær sem er? Og sprakk ekki toppurinn ofan af St Helens fyrir ekkert svo löngu? Eyjafjallajökulsgosið og Grímsvatnagosið voru bara dvergar í samanburði við það. Það þarf að setja upp gapastokka fyrir þetta lið sem skrifar svona.
mbl.is Ísland er tifandi tímasprengja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lægri refsingar í bandormi

Er ekki alveg sjálfgefið að þessi stjórnvöld standi fyrir því að láta samþykkja refsilækkun fyrir að svíkja undan skatti, bara ef skattsvikarinn er nógu ríkur? Þeir sem lítið hafa á milli handanna stunda ekki afleiðuviðskipti með hlutabréf og gjaldmiðla, svo að þetta getur ekki átt við þá. Þetta einskorðast við þau fáu prósent landsmanna, sem eiga 50% eða meira af öllum eigum þjóðarinnar.

Ef ríkisstjórnin færi nú að skattleggja þetta lið eða stuðla að því að það sé refsivert að telja ekki fram ágóðann af braskinu, þá væri hún algjörlega að svíkja þá stefnu sína sem hún hefur viðhaft alla tíð, að hinir ríku skuli hafa öll tækifæri til að verða ríkari á kostnað hinna.


mbl.is Lægri refsingar í bandormi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja herða byssulöggjöfina

Hópur manna kom saman við Hvíta húsinu húsið í gærkvöldi til að minnast þeirra sem fórust í skotárásinni í í bænum Newtown í Connectiuct í gær. Fólkið krafðist þess að Barack Obama forseti beitti sér fyrir því að herða löggjöf um byssueign í Bandaríkjunum.

Obama sagði í ávarpi sínu til þjóðarinnar í gær að það væri löngu tímabært að grípa til þýðingarmikilla aðgerða sem stuðluðu að því að svona atburðir endurtækju sig ekki.

Aðgerðir í þá veru að takmarka byssueign í Bandaríkjunum eru umdeildar meðal þjóðarinnar. Þó að margir séu þeirrar skoðunar að nauðsynlegt sé að herða löggjöfina hefur meiri hluti þjóðarinnar fram til þessa verið andvígur því að takmarka byssueign. Ákvæði er í stjórnarskrá Bandaríkjanna um réttindi þegna landsins til að verja sig.

Fjöldamorðin í Sandy Hook-skólanum hefur hafa ýtt undir umræður um þetta viðkvæma mál. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, hvatti til þess í gær að sett yrðu lög sem fækkuðu skotvopnum í umferð. Hann sagði byssueign Bandaríkjamanna þjóðarböl.

 

BARA ÓVENJU GOTT!


mbl.is Vilja herða byssulöggjöfina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins tveir þingmenn mættu. Mér er misboðið.

Þetta er alveg með ólíkindum og til svo háborinnar skammar að það slær allt út. Talandi um virðingu Alþingis og að þörf sé á að bæta álit þjóðarinnar á Alþingi, þá virkar þetta nú ekki í þá átt. Samkvæmt vef Alþingis eiga eftirtaldir þingmenn sæti í atvinnuveganefnd:

Björn Valur Gíslason, Einar K. Guðfinnsson, Jón Gunnarsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Kristján L. Möller, Lilja Rafney Magnúsdóttir,  Ólína Þorvarðardóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Þór Saari.

Ég vil að skilyrðislaust verði upplýst hvaða tveir af þessum gerðu sig ekki að dónum í þessu máli. Mér er algjörlega misboðið og það er alveg víst að svo er um fleiri.
mbl.is Aðeins tveir þingmenn mættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur borðað 50 tonn af Prins Póló á 55 árum

Gott er nú blessað Prins Pólóið.

Höfum í huga að 50 tonn eru 50000 kg (já, fimmtíu þúsund kílógrömm) og að 55 ár eru 55*365 = 20075 dagar, þá kemur í ljós að Ómar segist hafa étið 50000/20075 = 2,49 kg á dag.

Mér er sama hvernig Ómar reynir að halda fram þessari vitleysu, hann fær mig ekki til að trúa því að meðaltalsneysla hans hafi verið tvö og hálft kíló á dag. Það er vandi að ljúga. Maður þarf nefnilega aðeins að hugsa til þess að nokkur trúi bullinu.


mbl.is Hefur borðað 50 tonn af Prins Póló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennari fékk dóm um sig fjarlægðan

Hvernig getur svona nokkuð gerst?

Maður getur ekki varist þeirri hugsun að blessuð konan þekki mann sem þekkir mann... eða þannig.

En ætli það sé ekki bara hugsanafeill hjá mér?


mbl.is Kennari fékk dóm um sig fjarlægðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjö ára fangelsi fyrir barnaníð

"... eiginkona mannsins skoraðist undan því að gefa skýrslu fyrir dómi."

 Er það hægt? Samkvæmt hvaða lögum er hægt að neita að bera vitni?


mbl.is Sjö ára fangelsi fyrir barnaníð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hanna Birna næsti formaður?

Þessi stórsigur Hönnu Birnu vekur mikla athygli. Hún verður líklega öflugust allra nýliða á næsta þingi og Bjarni Ben má vissulega passa sig innan Sjálfstæðisflokksins.
mbl.is Óbreytt röð efstu manna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband