Koptíkar?

Koptíkar eru kristinn minnihlutahópur í Egyptalandi....

Nei, nei, ekki koptíkar heldur koptar.


mbl.is Dularfull kvikmynd kveikir í arabaheiminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dó standandi á höndum

17 ára þýskur ferðamaður á Korsíku lét lífið síðastliðinn laugardag við óvenjulegar aðstæður. Drengurinn, sem var í skólaferðalagi, ákvað að bregða á leik með félögum sínum og stóð á höndum við ljósastaur á tjaldsvæðinu sem þeir gistu á.

Svo illa vildi til að drengurinn, sem var berfættur, rak fæturna í ljósastaurinn með þeim afleiðingum að hann fékk raflost og lét lífið í kjölfarið. Félagar drengsins fengu í kjölfarið áfallahjálp og haft var samband við ræðismann Þýskalands á eynni.

Fram kemur á fréttavefnum Thelocal.fr að ekkert hafi fundist athugavert við ljósastaurinn, engir vírar stæðu út úr honum eða neitt slíkt. Þá sé ljósastaurinn á fjölförnum stað þar sem allt að 300 manns fari framhjá á degi hverjum.

 

Það er ósköp einfalt að þessu ljúga Frakkarnir. Það er svo gjörsamlega útilokað að ljósastaur sem ekkert er að drepi mann af raflosti. Vera má að ekkert sé lengur að staurnum, en það þarf að tala vandlega við þann sem skoðaði staurinn fyrstur. Var það með einhverju móti hans hagsmunamál að staurinn væri í lagi?


mbl.is Dó standandi á höndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðingarvandi Alþingis, ein fyrirlitnasta stofnun á landinu

Þjóðin yrði að geta treyst þinginu.

...virðingarvandi Alþingis verið helsta umræðuefnið.

...auka virðingu og álit Alþingis.

hófsemi í vali á verkefnum.

...átökum yrði að stilla í hóf ...

 

Þetta eru samhengislausar klippur úr fréttinni, þar sem haft er eftir forsetanum (vonandi rétt). Það er rétt hjá honum að virðingu og álit Alþingis verður að auka. Ég vil orða þetta svo að Alþingi verður að auka virðingu sína. Ég orða þetta svona vegna þess að ekki er hægt að auka virðingu þingsins á meðal þegnanna nema með þeim hætti að þingmenn hætti að hegða sér í orðum aðallega en stundum einnig í gerðum eins og óheflaðir götustrákar og ruddalegir sjóarar (sem einhverjir þeirra reyndar eru). Ekki er þar með sagt að allir sjómenn séu ruddar, fjarri fer því. En þessum einstaklingum virðist hafa tekist að draga með sér inn á þing mest af því versta sem tíðkast í hópi sjómanna og er illt til þess að vita.


mbl.is Tekið verði á vanda Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmdur fyrir að stela grillkjöti

Hann hefur verið svangur, auminginn. En heppinn var hann. Ef hann hefði stolið snæri þá hefði hann verið hengdur í spottanum...
mbl.is Dæmdur fyrir að stela grillkjöti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óttuðust að ná ekki í þá

Þessir menn eru hetjur. Það er bara svo einfalt. Ekki er gefist upp fyrr en í fulla hnefana þó svo að astæður séu nánast algjörlega vonlausar og uppskeran er fimm mannslíf. Stórkostlegt.
mbl.is Óttuðust að ná ekki í þá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurfelling námslána á dagskrá

Já. Líklegt til vinsælda meðal námsmanna, sem eru stór hópur í þjóðfélaginu. Það styttist til kosninga svo að ekki er seinna vænna að gera eitthvað til að kaupa vinsældirnar, því að ekki hefur verið svo mikið um vinsælar ráðstafanir af hálfu þessarar endemis ríkisstjórnar. Alveg má gera ráð fyrir að talsvert verði um frumvörp af þessum toga í vetur.
mbl.is Niðurfelling námslána á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðskilnaður ríkis og kirkju

Þessi breyting, sem vafalaust verður samþykkt í Noregi, er aldeilis af hinu góða. Það er ekki forsvaranlegt að miðaldahugmyndir um samband guðs almáttugs við keisarana séu enn við lýði. Við Íslendingar þurfum að taka þetta okkur til fyrirmyndar. Norðmenn eru svo gæfusamir að allir flokkar leggja málið fram og að líkindum styðja það, en ég sé ekki alveg fyrir mér að slíkt gæti gerst hér. Við eigum sennilega langa leið fyrir höndum áður en samþykkt verður að skilja á milli ríkis og kirkju. Það gengur ekki upp að segja að trúfrelsi ríki en gera svo jafnframt einum trúarbrögðum mun hærra undir höfði en öðrum.
mbl.is Aðskilnaður ríkis og kirkju í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurmáni...

Ofurmáni kallast það þegar tungl er næst jörðu og er jafnframt fullt. Þetta átti sér stað í gærkvöldi og eru stórkostlegar myndir sem fylgja þessari frétt.

Hins vegar er texti  undir mynd dálítið brenglaður og sýnir að blaðamaður er illa áttavilltur og veit lítið um fullt tungl, þar sem hann segir: Ofurmáni rís í vestri yfir Reykjavík.

Það er nú einu sinni svo að fullt tungl, hvort sem það er ofurmáni eða ekki, rís ekki í vestri heldur alltaf í austri. Þegar ofurmáni rís í vestri þá verður það frétt allra tíma.


mbl.is Íslenskur ofurmáni á CNN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í innsiglingunni

Það er rangt að þetta sip hafi strandað í innsiglingunni. Eins og sést af myndinni er skipið komið fram hjá hafnarmynninu og er því ekki lengur í innsiglingunni. Það þarf að gera þá kröfu til skipstjórnarmanna að þeir séu læsir á merkin, en það hefur greinilega klikkað þarna.
mbl.is Skýring á strandi liggur ekki fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á tvítugsaldri

Hér segir frá því að tveir menn á tvítugsaldri hafi verið handteknir fyrir að halda 16 og 17 ára stúlkum í kynlífsánauð. Það er ánægjulegt að takast skyldi að frelsa stúlkurnar. En svo er það aldur fólksins sem kemur við sögu. Orðasambandið "á tvítugsaldri" er venjulega ekki notað í íslensku, en væri það gert ætti það við um einstaklinga á aldursbilinu 10-20 ára. Semsagt að þessar stúlkur sem frelsaðar voru eru "á tvítugsaldri" ef við viljum nota það orðalag. Alveg er ég viss um að mennirnir tveir voru eitthvað eldri og hafa miðað við frásögnina trúlega verið á milli tvítugs og þrítugs. En þá er talað um að fólk sé á þrítugsaldri. Léleg íslenskukunnátta blaðamannsins skín hér í gegn.
mbl.is Unglingsstúlkum bjargað úr kynlífsánauð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 846

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband