9.6.2010 | 17:47
Friðarvísitalan
Þetta er nú allt gott og blessað. En höfum nú í huga þá staðreynd, að svona vísitölur geta verið meinlega gallaðar og í raun algjör hrákasmíð. Með því er ekki endilega sagt að þessi vísitala sé þannig. En mér er í minni að fyrir hrunið, sem orsakaðist af spillingu, vanþekkingu og andvaraleysi, þá var það gefið út af sjálfskipuðum spillingarmælisérfræðingum, að Ísland væri eitt af minnst spilltu löndum veraldar. Aldeilis kom annað á daginn og hafa spillingarpésarnir líklega nýtt sér þessa snarvitlausu vísitölu út í æsar við sína spilltu gjörninga. Spilling á Íslandi? Nei, alls ekki. Mælingar sýna....
Íslendingar eru friðsamir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hugleiðingar
Tenglar
Mínir tenglar
- Wikipedia á íslensku Sívaxandi fróðleiksbrunnur...
- Heimshlýnunarofsatrúin Síða sem sýnir fram á bullið
- Heimshlýnunarrugl-2 Þetta er jafnvel betri síða
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kannski höfum við í leyndó hafið innrás á Jan Mayen?
Brynjar Björnsson (IP-tala skráð) 9.6.2010 kl. 18:25
Íslendingar eru friðsamir. Útrásarvíkingar og aðrir siðpiltir glæponar , sem hafa komið þessari þjóð nánst til Helvítis, eru ekki farnir að týna tölinni enn.
V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.6.2010 kl. 21:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.