27.9.2009 | 17:11
Hvað er Össur að segja?
Sumt er kannski ágætt hjá kallinum, svo sem eins og ummæli hans um græðgina, siðleysið og ófyrirleitnina. En Norræna fjölskyldan okkar yfirgaf okkur ekki er eitthvað sem hljómar í mínum eyrum eins og örg lygi. Svo hrósar hann Pólverjum verðskuldað fyrir örlæti þeirra, en gleymir alveg þeirri þakkarskuld sem við stöndum í við Færeyinga og mun hún ekki vera minni.
Svo segir hann að sögn Mbl.is: ... þið, alþjóðasamfélagið, hefur veitt okkur mikilvægan stuðning. Jæja, er það svo? Þetta er alveg með ólíkindum lágt lagst í smjaðrinu. Þarna hefði hann átt að standa í lappirnar og skamma alþjóðasamfélagið fyrir samblástur gegn okkur, misbeitingu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í þágu tveggja ríkja, sem vissulega hlutu skaða af völdum nokkurra tuga ósvífinna Íslendinga, en svo er búið um hnútana að saklausri þjóð mun blæða í áratugi. Þetta hefði ég viljað að utanríkisráðherrann minn segði. En það er sko öðru að heilsa ef nokkuð er að marka fréttaflutninginn.
Össur ávarpaði allsherjarþing SÞ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hugleiðingar
Tenglar
Mínir tenglar
- Wikipedia á íslensku Sívaxandi fróðleiksbrunnur...
- Heimshlýnunarofsatrúin Síða sem sýnir fram á bullið
- Heimshlýnunarrugl-2 Þetta er jafnvel betri síða
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Maðurinn er hreinræktað fífl og þjóðinni til skammar,burt með þennan fávita.
Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 17:30
Færeyingar eru í "norrænu fjölskyldunni". Mbk, G
Gunnlaugur B Ólafsson, 27.9.2009 kl. 21:51
Jæja var Össi litli að bullukollast eina ferðina enn. Er hann að slá Álftanesfíflinu við?
axel (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 22:53
Er einhver að hlusta á þennan bjálfa?
gunna (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 22:56
Að þessi asni skuli vera í ríkisstjórn einhvers lands.
lelli (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.