Er ekk'í lagi heima hjá þér?

Þetta er bara alls ekki í lagi. Hvað er að hjá þjóðkirkjunni? Manni verður flökurt að lesa svona fréttir. Fólk sem er í nauðum látið ganga bónarveg oftar en einu sinni og er svo hreinlega svívirt með frávísun og neitun. Er ekk'i lagi heima hjá þér? segja krakkarnir þegar gengur fram af þeim. Og nú spyr ég þjóðkirkjuna: Er ekk'i lagi heima hjá þér? Hvað í ósköpunum er að ykkur sem stjórnið þarna? Þetta er bara viðbjóður.

Félagsþjónustan er svo engu betri. Hún getur samt skákað í því skjólinu sem kirkjan getur ekki, að félagsþjónustan verður að dansa eins og pólitískir pótintátar kippa í spottana. En hvað þá varðar þarf ég einskis að spyrja. Ég veit fyllilega að það er ekki allt í lagi heima hjá þeim.


mbl.is Peningalaus og synjað um aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það er ekki allt í lagi hjá okkur í dag því miður og virðist sem það verði engin breyting þar á því að stjórnvöld sofa!

Sigurður Haraldsson, 15.6.2011 kl. 17:32

2 identicon

Taka þær þúsundir milljóna sem fara árlega í nokkra presta og skrauthallir þeirra og nota til að hjálpa bágstöddum... Þetta eru um 5000 milljónir sem fara í þetta rugl... gamla draugasögu

DoctorE (IP-tala skráð) 15.6.2011 kl. 17:36

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Hjálparstofnun kirkjunnar tók þá ákvörðun að styðja bankana með því að taka upp greiðslukort fyrir matargjöfum.  Kerfinu fylgir svo greiðslumat a, la "gamla góða Ísland".

Magnús Sigurðsson, 15.6.2011 kl. 18:50

4 identicon

Heyrði af einni sem ég þekki sem gat ekki sýnt fram á að hún hafi ekki átt neina peninga eftir að hafa borgað skuldir og fl og var neitað... Hún átti að koma með alla reikninga sem hún borgaði og sýna launaseðill...Þetta er ógeð þetta lið sem ÞYKIST vera að hjálpa fólki... er orðin geðveik á þessu..

Ásta (IP-tala skráð) 15.6.2011 kl. 20:51

5 Smámynd: GunniS

eða til hvers þurfum við 15 milljarða í utanríkisráðuneytið.  löngu þörf á að forgangsraða.

GunniS, 15.6.2011 kl. 21:09

6 identicon

Sniðugt að hún eigi ekki sjónvarp.... hún þarf samt að borga... hvort sem hún á pening eða ekki...

jónatan (IP-tala skráð) 15.6.2011 kl. 22:00

7 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Það mætti alveg upplýsast hverjir hagnist á þessum kortum? Og hversu mikið!

Guðni Karl Harðarson, 15.6.2011 kl. 22:22

8 identicon

Peningarnir sem kirkjan hefur fer í launakostnað-- ekkert eftir fyrir fátæka.

Diddi (IP-tala skráð) 15.6.2011 kl. 22:31

9 Smámynd: GunniS

hverjir hagnast á þessum kortum  ??  það er búið að frysta skattleysismörk, búið að banna að tengja laun og tekjur fólks við vísitölur, en fyrirtæki og stofnanir fá samt að tengja sína gjaldskrá við vísitölur. búið að gelda verkalýðshreifinguna svo lágmarkslaun er ekkert sem fólk rétt skrimtir á , og að lokum má minnast á verðtrygginguna sem bankarnir lifa á og því má ekki afnema hana.  allt hlutir þar sem  hinn óbreitti venjulegi borgari tapar á. plús það er búið að hækka skatta og álögur um tugi prósenta, hita , rafmagn, bensín, mat. 

svo spyrðu hver hagnast af matarkortum sem fólki sem er á bótum er úthlutað ?

GunniS, 15.6.2011 kl. 22:33

10 identicon

Hjálparstofnun kirkjunnar hefur áður orðið uppvís að svikum, sem Helgarpósturinn fjallaði um á sínum tíma. Er einhver óháður aðili, sem fylgist með, hvort starfsfólkið misnoti ekki aðstöðu sína í eigin þágu, eins og þá?

Steini (IP-tala skráð) 15.6.2011 kl. 22:43

11 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ó! þú misskilur GunniS ég vildi aðeins beina athyglinni að þessu. Sem og að benda á að það eru bankarnir sem hagnast á kortunum eða fá þeir jú ekki gjöldin fyrir þau þegar að þau er sett í gang?

Það er sem sagt að vera að nota sér neyð fólks en það var það sem ég vildi beina athyglinni að. Bara einn þátturinn enn í fátækragildrunni sem er í gangi.

Ekki misskilja mig. Ég er nákvæmlega sammála sem þú skrifar.

Verðtryggingin hefði tildæmis átt að fara af fyrir löngu!

Guðni Karl Harðarson, 16.6.2011 kl. 00:30

12 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Sem og hljóta bankarnir að hagnast af hverri einustu færslu sem fólk notar þessi kort í búðum.

Guðni Karl Harðarson, 16.6.2011 kl. 00:33

13 Smámynd: GunniS

svoleiðis   :)

GunniS, 16.6.2011 kl. 07:56

14 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Þakka öllum sem lagt hafa orð í þennan belg.

Magnús Óskar Ingvarsson, 16.6.2011 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 849

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband