Hver er skoðun ASÍ?

„Ég tel ekki að ég hafi verið kosinn í þetta embætti til að hafa enga skoðun. Það er alveg klárt. Ég geri skýran greinarmun á því þegar ég er að lýsa yfir minni persónulegu skoðun, að ég tel, og síðan þegar samtökin móta sína stefnu og lýsa sinni skoðun sem samtök“, segir Gylfi Arnbjörnsson.

En Gylfi, hvort ætlar þú að hafa hærra um þína skoðun eða álit ASÍ, sem við skulum ekkert efast um hvernig verður, ef það fær einhvern tímann að koma fram í dagsljósið?

Menn sem eru kjörnir til að vera í forsvari svona almannasamtaka (nánast) verða að gæta sín á því að flagga ekki eigin skoðunum um of. En að sjálfsögðu er þeim frjálst að hafa skoðun. Hún á bara að vera víkjandi fyrir þeirri skoðun sem þeir eru á launum við að verja, ef þetta tvennt stangast á. Annars eiga þeir að segja af sér.


mbl.is Gylfi: Ekki afstaða ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jájá Steingrímur...

Og hvers vegna gast þú ekki bara svarað Mogganum og RÚV nákvæmlega þessu og verið búinn að því áður en Björn Valur gerði þér þann greiða að leggja fram sína fyrirspurn á þinginu? Það hefði nú sparað þér slatta af leiðindum.
mbl.is Umboðsmanni verður svarað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál

Sektin hefur skinið af Baldri alveg frá því að þetta mál kom fyrst fram í fjölmiðlum eftir hrunið. Því er þessi dómur réttlátur. Trúlega mun Baldur áfrýja þessum dómi til Hæstaréttar og reynir þá mikið á alla flokksbræður hans þar, hvort þeir verða trúrri lögunum eða flokknum. En dómarar skulu dæma eftir lögunum og lögunum einum og auðvitað treystum við þeim til þess.
mbl.is Baldur í 2 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Refurinn gafst upp

Steingrímur J, einhver argasti lygarefur íslenskrar pólitíkur allra tíma (og er þó af nógu að taka) hefur gefist upp við þá fyrirætlun sína að svara ekki fyrirspurnum fjölmiðla og flokksbróður síns fyrir kosningar. Enda hefði ámæli hans af slíku háttalagi engan enda tekið, frekar en allt annað ámæli sem hann hefur hlotið og mun enn um eitthvert sinn hljóta vegna stjórnsýslu sinnar. Vonandi er að endemisstjórnin hans og Jóhönnu hafi manndóm í sér til að segja af sér eftir að þessi Æseifur verður felldur með svona 60+/40-. Leitt er að Jóhanna skuli ekki vera á myndinni með þeim VG forkólfum, sem styðja bæði hönd undir höku, líklega í vonlausri tilraun til að halda andlitinu, en það tekst engan veginn, allavega ekki hjá refnum Steingrími.
mbl.is Kostaði yfir 300 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið var

Lilja og Atli eru búin að vera kúguð lengi í VG. Reyndar líka Ásmundur Daði, en hann virðist ekki hafa alveg jafn hart bein í nefinu og þau tvö. Það var ekki vonum fyrr að þau segðu sig úr þessum endemis flokki. Ásmundur hefði átt að gera það líka.
mbl.is Segja sig úr þingflokki VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væntanlegur söngur

Bráðum byrjar söngurinn sem við höfum áður heyrt. Gömlu lögin sungin og leikin. Flytjendur: Jóhanna og Steingrímur. Við vitum ekki og skiljum ekki um hvað þessi einskisverða þjóðaratkvæðagreiðsla á að snúast. Ekki ætlum við að mæta á kjörstað og taka þátt í þessum skrípaleik. Bla, bla, bla ...

Þessi söngur var kveðinn ákaft fyrir tæplega einu ári og alveg örugglega fáum við að heyra hann endurtekinn allt þangað til kosið verður á nýjan leik.


mbl.is Undrast mjög ákvörðun forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einsöngvari í Iceslave-kór

Gylfi syngur einsöng í Iceslave-kórnum. Dómstólaleið er þyrnum stráð segir hann. Og svo síðar: Öll töf á framgangi þessa vonda máls mun kosta okkur eitthvað.

En staðreyndin er nú sú að allar tafir hingað til á þessu vonda máli hafa verið okkur mjög í hag, svo að telja má í hundruðum milljarða króna. Það finnst Gylfa greinilega ekkert gefandi fyrir. Svo er líka hitt, að eins og Gylfi segir þá hefur það frá upphafi verið krafa íslensku þjóðarinnar að borga ekkert nema eftir dómi. Það hafa Bretar og Hollendingar ekki mátt heyra minnst á. Mér þætti gaman að heyra Gylfa reifa stuttlega ástæður þess. En ég veit að það vill hann sleppa við. Ég veit hins vegar að ástæða dómstólafóbíunnar í Bretlandi og Hollandi er aðeins ein. Þeir vita sig hafa slæman málstað og ef við ynnum, sem þeir telja meira en mögulegt og jafnvel fullvíst, þá hrynur allt bankakerfi allrar Evrópu.

Þess vegna er okkur alveg óhætt að senda þetta ólögvarða rugl þeirra út í hafsauga þar sem það hefur alltaf átt heima. Þeir munu ekki höfða mál undir nokkrum kringumstæðum og varla förum við að lögsækja sjálf okkur? Annars veit ég það nú ekki. Það er engin leið að reikna J+S út. Bretahyskið í ríkisstjórn Íslands.


mbl.is Óvissa framlengd um nokkur ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Loksins, loksins! Lengi hefur verið beðið eftir einhverju jákvæðu hér á þessu landshorni. Þetta er fyrsta góða fréttin í atvinnumálum í fjölmörg ár. Maður getur bara ekki varist þeirri hugsun hvort Jóhönnu, Steingrími og Svandísi sé farin að förlast fótalistin? Þau hafa að undanförnu reynst best í því að bregða fótum fyrir sérhvað það sem hér hefði getað horft til uppbyggingar. En það má reyndar segja um landið allt. Það er alveg magnað og frábært að tekist skuli hafa að semja um þetta verk þrátt fyrir setu þeirra á valdastólunum.
mbl.is 17 milljarða fjárfesting
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slöpp málkennd 19

Nemendum við Bifröst og Háskólann í Reykjavík var í dag kynntar viðræður ...            voru

Eftirfarandi er innan gæsalappa og má vera að ekki sé við blaðamann að sakast. En svona lítur þetta út: „Núna þessar vikurnar stendur yfir kostgæfniathugun á því hvort af af sameiningu leiðið umtalsverð fjárhagsleg hagræðing. Því til þess að af þessu verði þarf að vera skýr fjárhagslegur ávinningur, í fyrsta lagi, og líka að af nýju skóla verði akademískur ávinningur til lengri tím. Það eru þessi tvö atriði sem verið er að gaumgæfa núna."    

að af           leiði          nýjum          tíma

 


mbl.is Styttist í sameiningu HR og Bifrastar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klár og einörð stefna

Það er algjörlega rangt að íslensk stjórnvöld séu stefnulaus. Stefnan er alveg klár og þþað er barist fyrir henni af mikilli einurð.

Eins og þessi listi sýnir svo að ekki verður um villst, þá er stefna íslenskra stjórnvalda NIÐUR.

Niður með íslenska þjóð! Það er stefna Jóhönnu og Steingríms. Við höldum ykkur niðri og drögum ykkur dýpra.

Það verður barist á Austurvelli í dag. 


mbl.is Ísland lækkar á lífskjaralista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband