1.11.2010 | 08:08
Slöpp málkennd 4
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var enginn inn í húsnæðinu... segir þar. Orðin inn og inni eru höfð annars vegar um hreyfingu og hins vegar um staðsetningu. Hann fór inn í húsið lýsir hreyfingu einhvers sem kemur að utan. Hann var inni í húsinu lýsir staðsetningu hans eftir að hann er farinn inn. Hér hefði því átt að standa: Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var enginn inni í húsnæðinu...
Eldsvoði við Eirhöfða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hugleiðingar
Tenglar
Mínir tenglar
- Wikipedia á íslensku Sívaxandi fróðleiksbrunnur...
- Heimshlýnunarofsatrúin Síða sem sýnir fram á bullið
- Heimshlýnunarrugl-2 Þetta er jafnvel betri síða
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heldurðu að þetta gæti ekki verið innsláttarvilla, sem allir geta gert, frekar en ómeðvituð málfræðivilla?
Vendetta, 1.11.2010 kl. 10:24
Það er hugsanlegt, en ber samt vitni lélegum vinnubrögðum. Það er ráðlegt að lesa yfir það sem maður hefur skrifað áður en ýtt er á enter.
Magnús Óskar Ingvarsson, 1.11.2010 kl. 10:45
Ég tek undir þetta með þér Magnús. Þær eru allt of margar málvillurnar sem koma frá blaðamannakálfunum. Gæti verið að blöðin séu hætt að notast við prófarkalesara, eins og þau gerðu hér áður fyrr.
Marinó Óskar Gíslason, 1.11.2010 kl. 15:11
Marinó: Það finnst mér trúlegt. En sé svo er það mikil afturför .
Magnús Óskar Ingvarsson, 1.11.2010 kl. 17:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.