Slöpp málkennd 17

Er ekki fiskolía venjulega kölluð lýsi?

Undir myndinni er eftirfarandi texti: Lækningamáttur fiskolíu eru dregnir í efa í nýjum rannsóknu. Þetta ætti vitanlega að vera  Lækningamáttur lýsis er dreginn í efa ...


mbl.is Fiskolía hægir ekki á Alzheimer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Haha, já. Þetta er auðvitað bara kallað "fish oil" á ensku. Þetta hefur gengið í gegnum tvær snaranir og orðið "fiskiolía". En það vantar greinilega einhverjar tengingar í heila blaðamanns (það eru m.a.s. myndir af lýsi með greininni). Ætli hann taki örugglega lýsið sitt?

Danni (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 11:33

2 identicon

Danni, hvort viltu hafa lýsið "fiskolia" eða "fiskiolia"?

Bjössi (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 13:07

3 Smámynd: Vendetta

Það sem þú skrifar, stendur alls ekki í fréttinni. Það stendur: "Í frétt CNN kemur fram að rannsóknin sé sú nýjasta en eflaust ekki sú síðasta þar sem áhrif omega fitusýru á andlega heilsu fólks eru dregin í efa." Sem að vísu hefur í orðalaginu sams konar innsláttarvillu.

Ég ætlaði að skrifa "inniheldur" í staðinn fyrir "hefur í orðalaginu", en ég þorði því ekki. 

Vendetta, 3.11.2010 kl. 13:24

4 Smámynd: Vendetta

Æ, fyrirgefðu, þetta var rétt hjá þér. Ég hafði ekki tekið eftir myndatextanum.

Vendetta, 3.11.2010 kl. 13:40

5 identicon

Þetta er eins og að gagnrýna einhvern fyrir að segja t.d. petrolatum en ekki tiltekið markaðsnafn efnisins sem væri þá Vaselín.

Því verð ég bara að segja að það sé ekki ásættanlegt að væla yfir þessu á grundvelli málkenndar.

Helgi (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 16:49

6 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Æ, fyrirgefðu Helgi, ég ætlaði ekki að meiða þig! En heldur þú að lýsi sé bara markaðsnafn og að einhverju leyti hliðstætt við Vaselín? Þá ertu á alvarlegum villigötum.

Magnús Óskar Ingvarsson, 3.11.2010 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 850

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband