Stjórnmálamenn eiga ekki að ljúga... hahaha!

Stjórnmálamenn eiga ekki að ljúga. Það er nú fallega sagt og líklega vel meint líka. Hins vegar er lygin svo alþekkt og viðurkennt tól stjórnmálamanna í baráttunni um völdin að leitun er að ólygnum stjórnmálamanni.

Stjórnmálamenn upp til hópa virðast líta svo á, að þegar þeir ljúga þá sé það nú "bara hvít lygi" og slíkt hreinlega teljist ekki með og sé skaðlaust. En er það svo? Litlu lygarnar kalla alltaf á aðrar stærri í framhaldinu. Hjá því verður aldrei komist. Þess vegna er hvíta lygin skaðleg og stjórnmálamaður, sem langar til þess að litið sé á hann sem heiðarlegan, skyldi aldrei beita henni.

Íslensk stjórnmál einkennast að stórum hluta af lygum og hverjum öðrum bellibrögðum sem hægt er upp að hugsa. Reyndar er þetta bara einkenni stjórnmála almennt og er með engu móti bundið við Ísland eins og sést á þessu máli í Englandi. Það yrði engin smáræðis breyting á Alþingi ef þaðan væru hreinsaðir allir þeir pólitíkusar sem daglega ljúga, hvort sem þeir nú beita hvítri eða svartri lygi. Sá sem eingöngu beitir hvítri lygi er bara skemmra kominn á þróunarbrautinni en hinn.


mbl.is Stjórnmálamenn eiga ekki að ljúga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband