7.10.2009 | 17:33
Hjálp frá Norðmönnum
Gott ef satt reyndist. En ósköp er ég vantrúaður á þetta. Það er ekki svo langt síðan að við heyrðum í æðstu ráðamönnum Noregs þegar þeir voru að erindast hér á landi. Það var sko ekki þetta hljóð í þeim. Þeir gátu ekki talað skýrar um það að ef við ætluðum að vonast eftir fjárhagsaðstoð frá Noregi, þá skyldum við fyrst koma Æseif í lag og ná sáttum við AGS. Mér vitanlega er Sigmundur Davíð ekki að tala við þessa sömu menn og því gildir bara alveg einu hvað við hann er sagt. Það er allt saman laust í reipum og ég vil flokka það undir fagurgala. Hann er ódýr þegar viðkomandi þarf ekki að standa við það sem hann segir og er heldur ekki í aðstöðu til þess.
Mikill velvilji í garð Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hugleiðingar
Tenglar
Mínir tenglar
- Wikipedia á íslensku Sívaxandi fróðleiksbrunnur...
- Heimshlýnunarofsatrúin Síða sem sýnir fram á bullið
- Heimshlýnunarrugl-2 Þetta er jafnvel betri síða
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef hann reddar láni, þá mun ég kjósa hann í fyrsta skipti, og líkleg yrði framsókn stærsti flokkurinn og sjálfstæðis og samfylkingin fengju lannnnnnngt frí :)
sigurður helgason (IP-tala skráð) 7.10.2009 kl. 18:06
Ef hann reddar góðu láni og kemur AGS út úr landinu myndi ég sko örugglega kjósa hann líka í fyrsta skifti.
Birna Jensdóttir, 7.10.2009 kl. 18:33
Já, ég er sammála. Hins vegar tel ég líkurnar á því að Sigmundur reddi láni fáránlega litlar. En ég skal að mér heilum og lifandi kjósa hann næst ef honum tekst að landa þessu.
Magnús Óskar Ingvarsson, 7.10.2009 kl. 18:34
Íslendingar eru alltaf samir við sig.
Alltaf tilbúnir að kjósa fjórflokkana þrátt fyrir að landið sé gjaldþrota vegna þeirra.
Æðislega gáfuð þjóð.
Már (IP-tala skráð) 7.10.2009 kl. 19:45
Már: Eigum við þá að kjósa Hreyfinguna eða eitthvað annað ámóta? Ertu að reyna að segja það?
Magnús Óskar Ingvarsson, 7.10.2009 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.