Gengu frá Básum í Þórsmörk

Rétt er að láta það koma fram að Básar eru ekki í Þórsmörk, heldur í Goðalandi. Krossá aðskilur Goðaland (sunnan megin, þar eru Básar) og Þórsmörk (norðan megin). Fjölmiðlar flestir ef ekki allir hafa japlað á vitleysunni alveg frá gosbyrjun, en ættu nú að fara að bæta ráð sitt.
mbl.is Þúsund manns við eldstöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Smámunasemi. :)

Ármann (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 23:59

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég hef nú talið Bása til Þórsmerkur og viðurkenni fáfræði mína ef svo er ekki? M.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.4.2010 kl. 00:14

3 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Smámunasemi? Jájá. En þó ekki meiri en svo að mbl.is bætti ráð sitt og lagaði fréttina. Núna segir þar að menn gengu frá Básum. Batnandi mönnum er best að lifa og nú veit Anna hér eftir að Básar eru ekki í Þórsmörk frekar en að Kópavogur sé í Reykjavík.

Magnús Óskar Ingvarsson, 4.4.2010 kl. 05:23

4 Smámynd: Björn Þröstur Axelsson

Ekki vissi ég, og finnst þetta ekki skipta máli svona almennt séð , samanber að sauðsvartur almúginn talar um að fara " INN Í ÞÓRSMÖRK" þó dvelja eigi í Básum og eins gera seljendur ferða auglýsa  ÞÓRSMERKURFERÐIR burt séð frá hvar á að gista ,Eins og Jarðfræðingurinn sagði "ALLTAF ER GAMAN Í ÞÓRSMÖRKINNI" o.s.frv.og ég býst við, alveg hafi verið jafn gaman hjá honum og Maríu  þegar hún tróð sér inn í tjaldið hjá honum,hvar sem það var á ÞÓRSMERKURSVÆÐINU.Þetta minnir mig reyndar á að vini mínum Dönskum finnst alltaf mjög fyndið, að við MOLBÚAR  tölum gjarna um að við höfum farið til KANARÍEYJA en Danir nefna alltaf nafn þeirrar eyjar sem þeir ætla til,ja lítið er ungs manns gaman  og ég segi nú bara GLEÐILEGA PÁSKAHÁTÍÐ.

Björn Þröstur Axelsson, 4.4.2010 kl. 08:59

5 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Sömuleiðis Björn, gleðilega páska!

Magnús Óskar Ingvarsson, 4.4.2010 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 784

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband