11.12.2011 | 14:17
Sandwich-eyjar
Þó að enska orðið sandwich sé í daglegu tali haft um samloku þá er alveg út úr kú og lýsir bara vanþekkingu að halda að það gangi að kalla Suður-Sandwich-eyjar "Samlokueyjar". Eyjarnar, sem eru í Suður-Atlantshafi, fengu nafnið árið 1775, þegar James Cook landkönnuður fann þær. Hann hafði engan veginn samloku í huga við nafngiftina, heldur gaf hann þeim nafnið til heiðurs ákveðnum manni, sem var John Montagu, 4. jarlinn af Sandwich. Titillinn er kenndur við stað í Kent á Englandi, sem heitir Sandwich og þegar rætt er um þann stað þá dettur engum í hug samloka. Upphaflega var Sandwich Islands nafn á þeim eyjum sem í dag heita Hawaii-eyjar. Suður- forskeytið var notað til aðgreiningar. Raunhæft er að kalla eyjarnar Sandvíkureyjar, það er þó allavega hljóðlíking og líklega merkingarlega rétt líka, allavega er sandvík í Kent rétt hjá smábæ sem heitir Sandwich. En samlokan á ekki erindi hingað.
Samlokueyjar skulfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2011 | 02:26
"Stelpurnar okkar" gera það gott
Mjög góð frammistaða íslenska liðsins þarna suðurfrá vekur athygli alheimsins á Íslandi. Stelpurnar hafa sýnt það að liðið hefur karakter en þó benda fréttir til þess að í leiknum gegn Kína hefðu þær mátt vera heilsteyptari.
Vonandi vinna þær sætan sigur á Rússum!
Hrafnhildur: Verður fínt að slá út heimsmeistarana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2011 | 20:29
Magmaleikurinn endurtekinn og Nubo kaupir Grímsstaði
Sakar Ögmund um dylgjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2011 | 12:55
Má maður vona?
Þetta er ekki stjórnarfrumvarp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2011 | 10:10
Velferðarstjórnin á villigötum
Ríkisstjórnin okkar nú um stundir er á slíkum algjörum villigötum að maður botnar ekki í neinu. Allar hennar aðgerðir eða í flestum tilvikum aðgerðaleysi hvað það varðar að vera skjöldur og hlíf fólksins í landinu hafa frekar snúist upp í það að verja fjármagnið og samþjöppun þess í stað þess að tryggja meiri dreifingu.
Allt sem Benedikt segir í bréfi sínu er satt og rétt. Maður hefði ekki búist við neinu slíku af vinstri flokki, hvað þá flokki sem telur sig jafnaðarflokk. Þetta er sá argasti ójöfnuður, sem nokkru sinni hefur sést hér á landi.
Segir sig úr Samfylkingunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.11.2011 | 18:40
Fjöldamótmæli
Hvað er að gerast í Bandaríkjunum? Ljóst er að þar er upplausn í þjóðfélaginu, sem að því leyti stendur á fallanda fæti. Hins vegar er mjög undarlegt að nær allar fréttir af aðgerðum mótmælenda og lögreglu koma frá Bretlandi, aðallega BBC og Guardian. Hvers vegna eru engar fréttir frá amerísku fréttastofunum?
Það vekur ugg þegar sagt er frá því í fréttum að blaðamenn séu reknir af vettvangi og hótað handtöku að öðrum kosti. Þá er eitthvað svart í bígerð. Fréttamenn skulu halda sig fjarri, ekki segja frá athöfnum mótmælenda og því síður segja frá athöfnum lögreglu og/eða þjóðvarðliða. Spúkí.
Undirbúa fjöldamótmæli í New York | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2011 | 21:50
Lengi skal manninn reyna...
Þessu hefði ég aldrei trúað að fenginni allri fyrri reynslu af Birni Val: Hér tekst honum í fyrsta sinn sem ég veit um að mæla af viti. Það er líka allmerkilegt að Steingrímur var ekki búinn að gefa opinbera línu í málinu áður, en Björn Valur hefur virst vera málpípa hans í einu og öllu hingað til, sama hvaða lygi Steingrímur hefur þurft að troða ofan í kok þjóðarinnar hverju sinni.
Hins vegar var Sigmundur Rúnar á rangri braut í Kastljósinu í kvöld, brjálaður að eigin sögn og virtist telja eðlilegt að ráðherra brjóti landslög ef svo vill verkast.
En merkilegt er það að enginn hefur nefnt hinn augljósa möguleika að feta í slóð Magma Energy. Huang Nubo getur stofnað skúffufyrirtæki í Evrópu og látið það kaupa allt sem hann langar í. Þá er ekkert hægt að segja eða gera.
Kanni áhuga Huang á fjárfestingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2011 | 12:44
Fólk geti skilað íbúðum - lyklafrumvarpið
Fólk geti skilað íbúðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.11.2011 | 21:43
Fullt af viti
Allir fái veiðiheimildir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.11.2011 | 15:47
The Idiot
Mér er í minni atvik úr menntaskóla. Einn bekkjarbróðir var tekinn upp í frönskutíma og stóð greinilega ekki undir væntingum kennarans, sem var þekktur fyrir að vera hvatvís og láta allt flakka. Þetta var á þeim árum þegar kennarar og nemendur þéruðust. Sem nú nemandinn svaraði einhverju kolvitlaust segir kennarinn allt í einu:
Heyrið mig, hafið þér nokkuð lesið söguna The Idiot eftir Dostojevski?
Nei, svaraði nemandinn umsvifalaust, en hafið þér nokkurn tímann lesið söguna The Selfish Giant eftir Oscar Wilde? Samræðurnar urðu ekki lengri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hugleiðingar
Tenglar
Mínir tenglar
- Wikipedia á íslensku Sívaxandi fróðleiksbrunnur...
- Heimshlýnunarofsatrúin Síða sem sýnir fram á bullið
- Heimshlýnunarrugl-2 Þetta er jafnvel betri síða
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar