Færsluflokkur: Bloggar

Flottir

Einhvern veginn er ég alveg fullviss um það að dómur INSARAG verður jákvæður. Íslenskar björgunarsveitir hafa margoft sýnt og sannað getu sína við erfiðustu aðstæður sem finnanlegar eru. Ef það er í mannlegu valdi þá geta þær leyst verkefnið. Það held nú ég.
mbl.is Rústabjörgunaræfingu á Gufuskálum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

... störf gerð tortryggileg ...

Það var og. Frá mínum sjónarhóli þá lítur þetta þannig út að maðurinn sá alfarið um það sjálfur að gera störf sín tortryggileg. Hafi það verið með ómaklegum hætti getur hann bara við sjálfan sig sakast. Mjög gott mál fyrir hann sjálfan og okkur öll hin að hann biðjist lausnar. Við þurfum ekki svona menn í okkar þjónustu. Farvel Frans.
mbl.is Fer fram á lausn frá störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi

Það verður spennandi að fylgjast með Daníel í þessari keppni og skal honum óskað góðs gengis. Hann fær í það minnsta góða reynslu út úr þessu þó ekkert annað væri.
mbl.is Tekur þátt í HM í rallakstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiðyrðamál

Það er auðvitað alveg sjálfsagt að höfða meiðyrðamál út af þessu og krefjast bóta. Ég meina það. Hver vill liggja undir ummælum eins og koma fram í lokaorðum fréttarinnar í mbl.is:  „Ekkert liggur fyrir sem bendir til ólögmætrar háttsemi af hálfu Magnúsar Árna.“ Hver vill svosem liggja undir slíkum ummælum?


mbl.is Gegn markmiðum Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

x-O í andstöðu

... við þingmenn sína og formann! Það verður ekki öðruvísi skilið. En annað vekur athygli í fréttinni. Sagt er að nú sé verið að ræða breytingartillögur við tillöguna sem búið er að samþykkja. Bíðum nú aðeins við. Veit enginn í Borgarahreyfingunni að venjulega eru breytingartillögur afgreiddar á undan tillögunni sjálfri? Þetta er mjög undarleg málsmeðferð.
mbl.is Tillaga þingmanna féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt fangelsi er tímabært

Hvað með nýtt hvítflibbafangelsi? Manni sýnist að það sé fullkomin nauðsyn, eða er það ekki? Ég er með tillögu. Hún er sú, að hvítflibbafjármálakrimmarnir verði sjálfir látnir koma sér þaki yfir höfuðið. Þeir geta verið í vegavinnuskúrum á meðan. Með staðsetningartæki um ökklann. Óje.....
mbl.is Efla þarf dómstólana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vansæmd Alþingis

 Ég er algjörlega sammála Ragnheiði Ríkharðsdóttur um það að framkoma þingmanna, framíköll og annar stráksskapur á ekki að líðast undir nokkrum kringumstæðum. Alveg er kominn tími á að slíkt sé tekið til alvarlegrar íhugunar og umfjöllunar þingsins sjálfs, annað hvort utan dagskrár eða á fundi nefndar. Formenn flokka og þingflokka auk allra óbreyttra þingliða verða að líta í eigin barm og hugsa sitt ráð.

Alþingi nýtur þeirrar virðingar sem það ávinnur sér. Á Alþingi koma saman 63 kjörnir fulltrúar, sem sumir eru dónar. Ég skef ekkert utan af því. Hver sá sem kallar fram í ræðu þess sem hefur orðið er dóni.

Það á heldur ekki að líðast undir nokkrum kringumstæðum að þingmenn ávarpi þjóð og þingheim svo áberandi drukknir að þeir ráði hvorki við tungu sína né útlimi. Þá má gera ráð fyrir því að apparatið sem á að hafa stjórn á þessu hvorutveggja, sem sagt tungunni og útlimunum, sé ekki fært um það.

Svona uppákomur eins og þetta tvennt ber vott um frábiður þjóðin sér. Alþingismenn verða að átta sig á því allir sem einn, að virðing Alþingis er undir framkomu þeirra komin. Ef almenningur sýnir Alþingi vanvirðu, þá stafar það af dónaskap og dólgshætti þingmanna fyrst og fremst.

Svei framíköllurum. Svei drykkjudólgum.


mbl.is Ragnheiður: Ekki þinginu sæmandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flensan í skólum

Nú í vikunni voru skólar að fara í gang. Þar kemur fólk saman úr öllum áttum svo hundruðum og þúsundum skiptir og er í miklu nábýli, ef svo má segja, því að víða er þröngt setinn bekkurinn. Búast má við að afleiðingin verði mjög snöggur kippur í útbreiðslu flensunnar eftir svona viku eða tvær.

Merkilegt er að dánartíðnin skuli vera hæst hjá ungum fullorðnum. Það er einmitt það fólk, sem maður gæti fyrirfram haldið að sé hraustast og gæti best staðið af sér pestina. Það er líka merkilegt ef ég man rétt, að svona var spænska veikin líka. Yngra fullorðna fólkið var veikast fyrir, minnir mig að ég hafi einhvers staðar lesið. Vafalaust verð ég leiðréttur ef mig misminnir þetta.


mbl.is Áhrif flensunnar greind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kate Winslet

Þetta er flott rós í hnappagat þessarar myndar hans Friðriks Þórs. Aldrei að vita hvar ævintýrið gæti endað. Með tónlist Bjarkar og SigurRósar (þó ég kunni hvorugt að meta) og Kate Winslet sem enskan þul gæti ýmislegt gerst.

Framtak Dorritar er afskaplega ánægjulegt og henni til sóma að styðja svona frábærlega við myndina.


mbl.is Dorrit fékk Kate Winslet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunadansinn

Til forna skemmtu menn sér á jólanótt (eða kannski nýársnótt?) í Hruna þar til kirkjan sökk með manni og mús. Hrunadans nútímans stóð yfir í nokkur ár, allt frá einkavæðingarrugli Davíðs til bankahrunsins á síðasta ári og við höfum enn ekki sopið seyðið af öllum þeim ósköpum.

Lengi hefur almenningur beðið og þótt Jóhanna og Steingrímur gera lítið í því að láta frysta eigur og höfða mál, krefjast skaðabóta og hreinlega að fá menn dæmda. Útrásarvíkingarnir hafa upp til hópa vanvirt þjóð sína og valdið henni ómælanlegu tjóni og álitshnekki. Því þykir þjóðinni sem þeir eigi ekkert gott skilið. Ekki lái ég þjóðinni.

Ánægjulegt er að loksins, seint og um síðir, eigi að hysja upp um sig og fara að sinna málunum eitthvað, þó svo að það virðist vera í litlu, allavega við fyrstu sýn. En samt mundi gleði mín vaxa til mikilla muna ef ég sæi einhvern lit á því að til stæði að leiðrétta þá svívirðu sem verðtryggingin er. Ég hef áður rætt það stuttlega og endurtek það ekki hér.


mbl.is Höfða einkamál gegn hrunfólkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugleiðingar

Höfundur

Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson
Er alveg að drepast úr besservisku og réttlætiskennd. Get sleggjudæmt í hverju máli sem verkast vill. Sleggjudómum verður ekki áfrýjað.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband